
Laugarás Lagoon – baðlón í hjarta Suðurlands
Komdu nær náttúrunni

Árskort – Vellíðan allt árið
Gerðu vellíðan að hluta af hversdeginum með árskorti í Laugarás Lagoon. Njóttu ótakmarkaðra heimsókna allt árið um kring, án fyrirframbókunar. Veldu á milli einstaklingskorts og fjölskyldukorts.

Bragð náttúrunnar
Á Ylju er lögð áhersla á ferskt hráefni frá bændum, gróðurhúsum og framleiðendum á Suðurlandi. Innblásturinn kemur úr íslenskri náttúru og matarhefðum, þar sem árstíðirnar og hráefnið eru í aðalhlutverki.
Njóttu máltíðar á Ylju eða sameinaðu mat og slökun með upplifunarpökkunum Ösp, með tveggja rétta máltíð af dagseðli, og Björk, með fjögurra rétta kvöldverði.

Yljandi jól
Frá 19. nóvember – 3. janúar tekur Ylja á móti jólunum með hátíðlegum seðli. Þar mætast íslenskar jólahefðir og hráefni úr nærumhverfinu í matargerð þar sem krydd, ilmur og hlýja jólanna fá að njóta sín.
Komdu saman með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki og njóttu góðrar stundar við hátíðlegt borð í Laugarási.

Birkitía – Tíu heimsóknir á betri kjörum
Með Birkitíunni færðu 10 nærandi heimsóknir sem færa þig nær jafnvægi, ró og vellíðan, á allt að 40% lægra verði.

Fylgstu með
Skráðu þig á póstlistann okkar. Fylgstu með nýjustu fréttum, viðburðum og sértilboðum frá Laugarás Lagoon.







