Trjákrónur skógarins við Laugarás séðar ofan frá

Rjóður

Náttúrulegar húðvörur

Láttu náttúruna umvefja þig. Ilmur af birki, krækiberjalyngi og mosa færa þig nær kyrrð íslenskrar náttúru.

  • Taktu hluta af Laugarási með þér heim.

    Hvort sem þú vilt taka ilminn úr Laugarási með þér heim eða gleðja einhvern með fallegri gjöf, þá finnur þú Rjóður húðvörurnar okkar hér í vefversluninni og í móttökunni hjá okkur.

    Rjóður á rætur sínar að rekja til lítils skógarjóðurs við Laugarás Lagoon, þar sem birki, villtar jurtir og mosi skapa einstakt andrúmsloft. Ilmhönnuðurinn Sonja Bent fangaði náttúru og kyrrð staðarins í einkennisilm Rjóðurs.

    Vörulínan er vandlega þróuð til að hlúa að húð og hári með mildum hreinsiefnum úr plönturíkinu, jojobaolíu og B5 próvítamíni.

Vörulínan

  • Rjóður Sturtusápa

    Færðu ró inn í sturtuna með íslenskum jurtum og náttúrulegum olíum sem veita raka og skilja húðina eftir mjúka og frísklega.

    300 ml100 ml
  • Rjóður Sjampó

    Sjampó án súlfata með B5 próvítamíni & Jojoba olíu sem stuðlar að heilbrigðum hársverði og gerir hárið mjúkt og glansandi.

    300 ml100 ml
  • Rjóður Hárnæring

    Létt og nærandi hárnæring sem mýkir og styrkir hárið. Inniheldur jojobaolíu, sheasmjör og vatnsrofið kollagen sem veita raka og skilja hárið eftir silkimjúkt.

    300 ml100 ml
  • Rjóður Handsápa

    Mild handsápa með íslenskum jurtum sem hreinsar án þess að þurrka húðina.

    300 ml
  • giftset of 3 rjóður products in a box

    Rjóður Gjafasett

    Ferskleiki og mild umhirða að íslenskum hætti, hvert sem ferðinni er heitið.

    3x100 ml
Rjóður Skincare Collection

Ilmurinn fangar kyrrðina úr rjóðrinu

Sagan hófst í litlu skógarjóðri við lónið, bak við skógarpottinn okkar, þar sem ilmhönnuðurinn Sonja Bent kannaði náttúruna og þá ilmi sem einkenna staðinn. Birki, villtar jurtir, krækiberjalyng, mosi og íslensk mold veittu innblástur að einkennisilmi Rjóðurs sem fangar náttúruna og einstakt andrúmsloft Laugaráss.

Vörulínan er vandlega þróuð til að hlúa að húð og hári með mildum hreinsiefnum úr plönturíkinu, rakagefandi jojobaolíu og B5 próvítamíni. Náttúrulegar olíur og jurtaþykkni fullkomna vörurnar og tengja þær við náttúruna í Laugarási.

Í dag er Rjóður hluti af upplifuninni í Laugarás Lagoon. Gestir kynnast vörunum í sturtunum og geta tekið ilminn og tilfinninguna frá Laugarási með sér heim að heimsókn lokinni.

Products on the edge of the forest pool in Laugarás Lagoon

Ilmur og innblástur

  • Glerkrukkur með íslenskum jurtum á dökkri mottu með áletrunum
  • Person sitting in the forest clearing in Laugarás Lagoon
  • Kona snertir grein í skóginum
  • Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa á steini í lóninu
  • Glertrektar og flöskur á tréborði umkringd mosa og jurtum
  • Person using the  Rjóður shower gel in shower
  • Person running in the forest clearing in Laugarás Lagoon
  • Sonja Bent creating the scent Rjóður