Fundir og viðburðir

Færið fundinn út úr hversdagsleikanum og inn í umhverfi sem gefur rými fyrir nýjar hugmyndir, góð samtöl og samveru.

Starfsmaður með kaffi og köku á fundi

Fundir og viðburðir í Laugarási

Færið fundinn út úr hversdagsleikanum og inn í umhverfi sem gefur rými fyrir nýjar hugmyndir, góð samtöl og samveru.

Hvort sem tilefnið er fundur, stefnumótun eða viðburður býður Laugarás upp á einstaka umgjörð þar sem náttúra, vellíðan og góð upplifun fara saman.

Fundarrýmið Hvítá á Ylju

Hvítá

47 m² einkarými á Ylju sem hentar fyrir fundi, stefnumótun, kvöldverð og móttökur.

  • Allt að 25 í fundaruppsetningu
  • Allt að 35 í sitjandi kvöldverð
  • Allt að 40 í standandi móttöku

Skjávarpi · Wi-Fi · Veitingar frá Ylju

Gestir slaka á í lóninu eftir fund

Meira en fundur

Gerið meira úr deginum í Laugarási með því að sameina fund eða stefnumótun, góða máltíð á Ylju og afslöppun í Laugarás Lagoon.

Byrjið daginn saman í einkarýminu Hvítá, stígið svo út úr fundarumhverfinu og njótið hlýja vatnsins og náttúrunnar áður en dagurinn heldur áfram yfir góðri máltíð á Ylju.

Allt á einum stað, með rými fyrir bæði einbeitingu, samveru og góðar stundir saman.

Réttur af sumarmatseðli Ylju

Maturinn verður hluti af deginum

Á Ylju verður maturinn hluti af upplifuninni, hvort sem um er að ræða fundarkaffi, hádegisverð eða kvöldverð saman.

Veitingastaðurinn er leiddur af matreiðslumanninum Gísla Matt, með áherslu á staðbundið hráefni, árstíðirnar og sterka tengingu við nærumhverfið í Laugarási.

Þannig getur dagurinn haldið áfram frá fundinum yfir í góða máltíð við sama borð.

Laugarás Lagoon séð að utan

Skipuleggjum daginn saman

Segðu okkur frá hópnum og því sem þið hafið í huga. Við hjálpum ykkur að setja saman upplifun sem hentar tilefninu.

  • Fundarrýmið Hvítá uppsett fyrir fund
  • Fundarrýmið Hvítá á Ylju
  • Veitingar á fundi á Ylju
  • Starfsmaður með kaffi og köku á fundi