
Veldu þína upplifun
Við bjóðum upp á þrjár leiðir til að njóta Laugarás Lagoon. Allir pakkar veita aðgang að lóninu og baðaðstöðunni.
Ösp
Lónið og tveggja rétta máltíð á Ylju
- Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins
- Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
- Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa
- Handklæði
- Drykkur á sundbarnum
- Tveggja rétta dagseðill (11:30–16:30) á Ylju
Lerki
Lónið með handklæði og drykk

- Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins
- Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
- Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa
- Handklæði
- Drykkur á sundbarnum
Birki
Aðgangur að lóninu

- Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins (handklæði ekki innifalið)
- Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
- Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa í sturtum

Slökun, samvera og matur í Laugarás Lagoon
Komið saman í Laugarási og gefið ykkur tíma til að slaka á. Sumir vilja liggja lengi í heitu lóninu, aðrir skiptast á gufubaði og köldu lauginni eða finna ró í kyrrláta hellinum. Hver og einn fer á sínum hraða.
Eftir baðið sameinast hópurinn við borðið á Ylju og nýtur góðrar máltíðar saman.
Gott að vita
Hópar með 15 eða fleiri fá hópakjör á baðsvæðið. Fyrir 10 eða fleiri bjóðum við upp á hópmatseðla sem panta má fyrirfram. Einnig er hægt að bóka einkarýmið Hvítá fyrir hópinn.

Í faðmi náttúrunnar
Innrammað af fjöllum og með útsýni yfir Hvítá breiðir baðlónið okkar úr sér yfir tvær hæðir. Hlýtt jarðhitavatnið umlykur þig í rólegu flæði, í takt við náttúruna allt um kring.
Dagsferð sem endar í heitu vatni
- Keflavíkurflugvöllur — Laugarás Lagoon
- 120 mínútur
- Reykjavík — Laugarás Lagoon
- 80 mínútur
- Geysir — Laugarás Lagoon
- 27 mínútur
- Gullfoss — Laugarás Lagoon
- 39 mínútur






