Sjálfbærni
Tengsl okkar við náttúruna eru djúp og það sama gildir um skuldbindingu okkar til sjálfbærrar starfsemi.
Við leggjum metnað í að innleiða umhverfisvænar lausnir í alla upplifun okkar gesta.
Vatnið okkar
Heita vatnið í lóninu kemur frá hverasvæðinu í Laugarási í gegnum Bláskógabyggð. Það er kælt niður með jökulvatni úr Hvíta, sem fer í gegnum náttúrulega síun áður en það rennur í lónið. Vatnið er því náttúrulegt og án klórs.

Beint frá býli
Við leggjum áherslu á samstarf við bændur og framleiðendur í nærumhverfinu og nýtum ferskt, árstíðabundið hráefni, meðal annars úr gróðurhúsum svæðisins. Matseðlar Ylju, sem eru skapaðir af Gísla Matt, endurspegla ríkidæmi nærsamfélagsins og íslenskrar náttúru. Með því að velja hráefni úr nærumhverfinu styðjum við við staðbundna framleiðslu og drögum úr kolefnisspori sem fylgir innflutningi hráefna.

Umhverfisvænar húðvörur
Í sturtunum okkar finnur þú Rjóður, okkar eigin húðvörulínu sem er framleidd hér á landi. Ilmurinn er hannaður af Sonju Bent hjá Nordic Angan og sækir innblástur í plöntur og villtar jurtir sem vaxa í litlu skógarjóðri bak við skógarpottinn okkar. Vörurnar endurspegla þannig einstaka náttúru Laugaráss, með umhyggju fyrir húðinni og umhverfinu að leiðarljósi.

Efni úr nærumhverfinu
Við opnuðum dyr okkar fyrir gestum árið 2025. Við uppbyggingu Laugarás Lagoon lögðum við áherslu á að nýta náttúruleg efni úr nærumhverfinu, meðal annars timbur úr nærliggjandi svæðum. Með þessari nálgun drógum við úr flutningsþörf og tryggðum að hönnun og arkitektúr féllu vel að náttúrunni og landslaginu í kring.