
Laugarás Lagoon – baðlón í hjarta Suðurlands
Komdu nær náttúrunni
Singles Day – 25% afsláttur til miðnættis 11.11
Gefðu vellíðan að gjöf á betra verði. Veldu gjafakort fyrir upplifun í Laugarási eða Rjóður húðvörur til að taka með heim. Gjafakortin og Rjóður húðvörurnar eru seld í sitt hvorri vefversluninni – veldu hvar þú vilt byrja.

Gjafakort
Gjafakort, árskortin okkar og Birkitían á 25% afslætti. Fullkomin jólagjöf fyrir þá sem þér þykir vænt um.

Rjóður húðvörur
Allar Rjóður húðvörurnar á 25% afslætti í vefversluninni. Taktu ilminn úr Laugarási með þér heim, eða gefðu hann í jólagjöf.

Bragð náttúrunnar
Á Ylju er lögð áhersla á ferskt hráefni frá bændum, gróðurhúsum og framleiðendum á Suðurlandi. Innblásturinn kemur úr íslenskri náttúru og matarhefðum, þar sem árstíðirnar og hráefnið eru í aðalhlutverki.
Njóttu máltíðar á Ylju eða sameinaðu mat og slökun með upplifunarpökkunum Ösp, með tveggja rétta máltíð af dagseðli, og Björk, með fjögurra rétta kvöldverði.

Yljandi jól
Frá 19. nóvember – 3. janúar tekur Ylja á móti jólunum með hátíðlegum seðli. Þar mætast íslenskar jólahefðir og hráefni úr nærumhverfinu í matargerð þar sem krydd, ilmur og hlýja jólanna fá að njóta sín.
Komdu saman með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki og njóttu góðrar stundar við hátíðlegt borð í Laugarási.

Birkitía – Tíu heimsóknir á betri kjörum
Með Birkitíunni færðu 10 nærandi heimsóknir sem færa þig nær jafnvægi, ró og vellíðan, á allt að 40% lægra verði.
Singles Day tilboð: Birkitían er nú á 25% afslætti, 44.250 kr. í stað 59.000 kr. Tilboðið gildir til miðnættis 11. nóvember.

Fylgstu með
Skráðu þig á póstlistann okkar. Fylgstu með nýjustu fréttum, viðburðum og sértilboðum frá Laugarás Lagoon.







