
Gefðu vellíðan að gjöf
Gjafakortin okkar
Gefðu vellíðan og fegurð á nýjasta griðastað Íslands – rétt handan borgarmarkanna.
Komdu þeim sem þér þykir vænt um á óvart með ógleymanlegri upplifun í Laugarás Lagoon, fullkomin leið til að deila töfrum íslenskrar náttúru.

Birki fyrir tvo
Aðgangur að lóninu fyrir tvo.

Lerki fyrir tvo
Lónið með handklæði og drykk fyrir tvo.

Ösp fyrir tvo
Lónið og tveggja rétta máltíð á Ylju fyrir tvo.

Umhverfis Laugarás fyrir tvo
Fimm rétta grænmetisseðill fyrir tvo af kvöldmatseðli Ylju.

Íslensk veisla fyrir tvo
Fimm rétta máltíð fyrir tvo af kvöldmatseðli Ylju.

Gjafakort – Upphæð
Veldu upphæð sem nýtist í baðaðgang, aukaupplifun eða máltíð á Ylju.
Viltu koma oftar en einu sinni?
Fyrir þá sem vilja njóta vellíðunar oftar bjóðum við Birkitíuna, tíu heimsóknir á betri kjörum, og árskort með ótakmörkuðum heimsóknum í heilt ár.

Birkitía
Tíu heimsóknir fyrir þig og gest að eigin vali.

Árskort – Einstaklingskort
Ótakmarkaðar heimsóknir í heilt ár fyrir einn fullorðinn og allt að tvö börn.

Árskort – Fjölskyldukort
Ótakmarkaðar heimsóknir í heilt ár fyrir tvo fullorðna og allt að fjögur börn.
Algengar spurningar um gjafakort
Til að bóka með gjafakorti á vefnum er bókað eins og venjulega. Í greiðsluferlinu er númerið á gjafakortinu slegið inn í dálk sem merktur er afsláttarkóði/gjafakort. Númerið er efst í horni gjafakortsins og byrjar á GCP. Muna að ýta á „virkja“.
Við mælum alltaf með að bóka fyrir fram til þess að tryggja að það sé laust. Með Ösp þá er nauðsynlegt að bóka fyrir fram í bókunarvél.
Því miður er ekki hægt að nota gjafakortin upp í aðrar vörur. Þau gilda eingöngu fyrir þá upplifun sem þau voru keypt fyrir.
Verð á aðgangi í Laugarás Lagoon eru breytileg og fara eftir dagsetningu, tíma og framboði hverju sinni. Birki aðgangur er frá 6.900–9.900 kr., Lerki aðgangur frá 9.400–12.400 kr. og Ösp frá 15.900–18.900 kr. Gjafakortin eru seld á föstu verði sem tekur meðaltal af verðbili aðganganna.



