Frábær vinnustaður í stórkostlegu umhverfi
Hjá Laugarás Lagoon starfar öflugur og metnaðarfullur hópur þar sem fagmennska, jákvæðni og samvinna eru í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á spennandi starfsumhverfi í einstakri náttúru á Suðurlandi, þar sem við vinnum saman að því að skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti og starfsfólk. Hér eru fjölbreytt tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Almenn umsókn
Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við teymið okkar?
Gott starfsfólk er hjartað í Laugarás Lagoon og við erum alltaf áhugasöm um að kynnast fólki sem vill vaxa og þróast með okkur. Við leitum að einstaklingum sem mæta til leiks með jákvætt hugarfar, metnað og vilja til að skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti og samstarfsfólk.