Kona í lóninu horfir út í bláan himininn

Lónið

Laugarás Lagoon er með baðlón á tveimur hæðum sem er hannað með hugmyndafræði um samhljóm manns og umhverfis. Hvort sem um ræðir rólega stund með ástvinum eða samveru með vinum, er Laugarás Lagoon tilvalið athvarf í amstri dagsins – í faðmi náttúrunnar.

  • Kraftmikill foss

    Laugarás Lagoon státar af fossi – þeim fyrsta sinnar tegundar meðal íslenskra lóna. Fossinn, sem er tæplega sjö metra breiður, fellur kröftuglega og geta gestir notið fegurðar hans um leið og þeir eru minntir á að vatnið er órjúfanlegur hluti af stórbrotinni náttúru Íslands.

    Gestur undir fossinum við sólsetur
  • Kyrrlátur hellir

    Í hellinum okkar finnur þú notalegt skjól, þægileg sæti og upplifun sem á sér enga líka.

    Kona í kyrrlátum helli lónsins
  • Gufuböðin

    Eftir dvöl í lóninu er gott að stíga inn í hlýjuna í þurrgufunni eða eimbaðinu okkar, sem eru staðsettar við skógarjaðarinn. Þar mætir hlýjan víðáttumiklu útsýni yfir bakka Hvítár og landslagið í kring sem býður upp á rólega stund til að hægja á sér.

    Gestir slaka á í gufubaðinu
  • Kalda laugin

    Við hlið gufubaðanna er kalda laugin sem fullkomnar áhrifin af gufunni og endurræsir líkama og skynjun.

    Gestur gengur að köldu lauginni í vetrarþoku
  • Skógarpottur

    Þú getur slakað á í skógarpottinum og notið hlýjunnar og mýktarinnar í vatninu mitt í skóginum.

    Gestir í skógarpottinum umkringdir trjám
  • Brún óendanleikans

    Slakaðu á við brún óendanleikans og njóttu stórbrotinnar náttúrufegurðarinnar sem umlykur þig.

    Kona við brún lónsins í morgunþoku
  • Barir baðlónsins

    Tveir sundbarir bjóða upp á drykki á meðan þú slakar á í hlýju og róandi vatninu. Tvær af aðgangsleiðunum okkar, Lerki og Ösp, innihalda einn drykk að eigin vali.

    Gestir við bari lónsins

Veldu þína upplifun

Við bjóðum upp á þrjá flokka bókunar, sem allir veita ótakmarkaðan aðgang að lóninu. Í Lerki-flokknum er innifalinn ókeypis drykkur og handklæðaþjónusta, en Ösp-pakkinn felur í sér tveggja rétta máltíð á veitingastaðnum Ylja.

  • Ösp

    Lónið og tveggja rétta máltíð á Ylju

    • Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins
    • Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
    • Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa
    • Handklæði
    • Drykkur á sundbarnum
    • Tveggja rétta dagseðill (11:30–16:30) á Ylju
  • Lerki

    • Vinsælast

    Lónið með handklæði og drykk

    Lerki – lónið með handklæði og drykk
    • Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins
    • Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
    • Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa
    • Handklæði
    • Drykkur á sundbarnum
  • Birki

    Aðgangur að lóninu

    Birki – aðgangur að lóninu
    • Ótakmarkaður aðgangur að útisvæðum lónsins (handklæði ekki innifalið)
    • Búningsklefi með skáp og snyrtiaðstöðu
    • Rjóður sjampó, hárnæring og sturtusápa í sturtum