Ljúft flæði bragðanna

Máltíðin er órjúfanlegur hluti af upplifuninni í Laugarás Lagoon. Á Ylju fylgja réttirnir árstíðunum og hráefnið kemur úr nærumhverfinu: grænmeti úr gróðurhúsunum í kring, fiskmeti og landbúnaðarvörur úr héraði. Þannig tengir hver máltíð gesti við staðinn, árstíðina og menninguna.

Gísli Matt, yfirkokkur Ylju

Gísli Matt skapar nýja upplifun á Ylju

Gísli Matthías Auðunsson, betur þekktur sem Gísli Matt, er einn af fremstu matreiðslumönnum landsins og maðurinn á bak við veitingastaðinn Slippinn í Vestmannaeyjum. Nú leiðir hann eldhúsið á Ylju, þar sem hann sameinar nútímalegar aðferðir og brögð við klassískt íslenskt hráefni og matarhefðir.

Jólaseðill

Yljandi jól

Frá 19. nóvember – 3. janúar tekur Ylja á móti jólunum með hátíðlegum seðli að hætti Gísla Matt. Þar mætast íslenskar jólahefðir og hráefni úr nærumhverfinu í matargerð þar sem krydd, ilmur og hlýja jólanna fá að njóta sín.

Komdu saman með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki og njóttu góðrar stundar við hátíðlegt borð í Laugarási.

Réttur af dagseðli Ylju

Dagseðill

Tveggja rétta dagseðill, fullkominn fyrir gesti sem eru á ferðinni yfir daginn.

Brönsplatti Laugarás Lagoon með lambakróketttum, tómötum með ferskum osti, grafinni bleikju, hleyptu eggi, grænum safa og grilluðu súrdeigsbrauði

Brönsseðill

Gerðu meira úr helginni með bröns á Ylju. Brönsplattinn okkar sameinar úrval rétta úr hráefni úr nærumhverfinu, útbúið að hætti Gísla Matt. Í boði alla laugardaga og sunnudaga.

Réttur af kvöldseðli Ylju

Kvöldseðill

Gestir geta átt von á úrvali sjávarrétta, kjötrétta og grænmetisrétta. Hægt er að para matinn með vel völdum vínum.

Réttur á Ylju

Hópaseðill

Hópamatseðlar fyrir 10 manns eða fleiri má finna hér. Bóka þarf með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara og verð miðast við að allur hópurinn velji sama matseðil.

Gróðurhús í Laugarási

Samvinna við samfélagið í Laugarási

Við leggjum áherslu á náið samstarf við þorpið Laugarás. Veitingastaðurinn Ylja er stoltur af því að fá hráefni frá gróðurhúsum og býlum nágranna okkar því þannig fá gestir innsýn í ekta, staðbundna upplifun sem á rætur í náttúru og nærumhverfi.

einkarými fyrir hópa og viðburði. Hentugt fyrir fundaraðstöðu eða fyrir hópa til að koma saman. Þráðlaust net og skjávarpi eru í rýminu.

Einkarými til leigu

Innan um kyrrláta stemningu á veitingastaðnum Ylju bjóðum við upp á hlýlegt og fallega hannað rými milli lónsins og veitingastaðarins fyrir ýmis tilefni. Hvort sem um er að ræða matarupplifun fyrir hópa, fundi eða móttöku er rýmið sveigjanlegt og hægt að aðlaga það tilefninu. Þráðlaust net og skjávarpi eru á staðnum.

Aðgangur í lónið og tveggja rétta máltíð af dagseðili á veitingastaðnum Ylju.

Gerðu meira úr heimsókninni með Ösp

Bókaðu heildarupplifun á betra verði. Byrjaðu á slökun í heitu lóninu með drykk í hönd og færðu þig svo yfir á Ylju í tveggja rétta máltíð af dagseðli Gísla Matt. Með Ösp færðu allt sem þarf fyrir fullkominn dag í Laugarási.

  • Ylja – stemning á veitingastaðnum
  • Ylja – matur og drykkur
  • Ylja – salurinn

Gjafakort á Ylju

  • Gestir njóta lónsins við Laugarás Lagoon

    Ösp fyrir tvo

    Lónið og tveggja rétta máltíð á Ylju fyrir tvo.

    • Grænmetis
    Photo of a lions mane mushroom dish

    Umhverfis Laugarás fyrir tvo

    Fimm rétta grænmetisseðill fyrir tvo af kvöldmatseðli Ylju.

  • photo of our lamb dish at Ylja restuarant

    Íslensk veisla fyrir tvo

    Fimm rétta máltíð fyrir tvo af kvöldmatseðli Ylju.

Leiðin til okkar

Keflavíkurflugvöllur — Laugarás Lagoon
120 mínútur
Reykjavík — Laugarás Lagoon
80 mínútur
Geysir — Laugarás Lagoon
27 mínútur
Gullfoss — Laugarás Lagoon
39 mínútur
Keflavíkurflugvöllur
Keflavíkurflugvöllur
Reykjavík
Reykjavík
Þingvellir
Þingvellir
Geysir
Geysir
Gullfoss
Gullfoss
Reykholt
Selfoss
Selfoss
Laugarás Lagoon