Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengustu spurningunum um Laugarás Lagoon, bókanir, aðstöðuna og veitingastaðinn Ylju.
Almennar spurningar
Laugarás Lagoon er jarðhitabaðlón á Suðurlandi. Það er hannað til að veita friðsæla baðupplifun og fyrsta flokks matarupplifun í hlýjum faðmi íslenskrar náttúru.
Það er staðsett í þorpinu Laugarási í Biskupstungum, nálægt bökkum Hvítár við hinn geysivinsæla Gullna hring.
Opnunartíminn okkar er breytilegur eftir árstíðum. Þú finnur gildandi opnunartíma Laugarás Lagoon og veitingastaðarins Ylju hér.
Eftir að lóninu lokar hafa gestir 30 mínútur til viðbótar til að fara í sturtu og klæða sig.
Börn og ungmenni á aldrinum 5–15 ára eru velkomin í baðlónið okkar í fylgd með fullorðnum. Börnum sem eru yngri en 5 ára er því miður ekki leyfður aðgangur að lóninu. Öllum aldurshópum er hins vegar velkomið að borða á veitingastaðnum Ylju.
Vatnshitinn í lóninu er yfirleitt á bilinu 38–40°C (100–104°F) sem veitir hlýja og afslappandi upplifun árið um kring.
Baðlónið er um það bil 94 km frá Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna hér.
Strætisvagnar 72 og 73 ganga til Laugaráss en ferðir eru ekki mjög tíðar.
Bílastæði eru í boði rétt hjá byggingunni.
Fylgdu okkur á heimasíðunni laugaraslagoon.is og samfélagsmiðlum Laugarás Lagoon til að fá nýjustu fréttir og tilkynningar.
Fyrir fyrirspurnir, sendu tölvupóst á info@laugaraslagoon.is.
Bókanir og aðgangar
Mælt er með að bóka fyrir fram til að tryggja aðgengi, sérstaklega á háannatímum í ferðaþjónustu.
Það er boðið upp á þrjá aðgangspakka: Birki (standard), Lerki (premium) og Ösp (deluxe), hver með mismunandi aðstöðu og þægindi innifalin.
Ótakmarkaður aðgangur að baðlóninu, kalda pottinum, gufuböðunum, hellinum, búningsklefum, einkaskáp og helstu snyrtivörum.
Allt sem fylgir Birki-pakkanum, afnot af handklæði og einn drykkur á barnum í lóninu.
Allt sem fylgir Lerki-pakkanum auk tveggja rétta máltíðar af dagseðli á veitingastaðnum okkar Ylju. Athugaðu að síðasti mögulegi tími fyrir borðabókun er klukkan 16:30.
Verð fyrir aðgang í baðlónið er breytilegt og fer eftir tíma, dagsetningu og bókunarstöðu og eru seld í bókunarvél okkar á vefnum. Birki aðgangur er frá 6.900–9.900 kr. og Lerki aðgangur frá 9.400–12.400 kr. Um hópa (15 einstaklingar eða fleiri) eru hins vegar föst hópaverð samkvæmt verðskrá og bendum við á að hafa samband við sales@laugaraslagoon.is fyrir hópabókanir.
Það eru engin tímatakmörk en baðlónið lokar hins vegar einni og hálfri klukkustund eftir þann tíma þegar síðasti aðgangur dagsins er seldur.
Verð á aðgangi í Laugarás Lagoon eru breytileg og fara eftir dagsetningu, tíma og framboði hverju sinni. Birki aðgangur er frá 6.900–9.900 kr., Lerki aðgangur frá 9.400–12.400 kr. og Ösp er frá 15.900–18.900 kr. Við mælum með að bóka fyrirfram í bókunarvél til að tryggja besta verðið.
Til að bóka með gjafakorti á vefnum er bókað eins og venjulega. Í greiðsluferlinu er númerið á gjafakortinu slegið inn í dálk sem merktur er afsláttarkóði/gjafakort. Númerið er efst í horni gjafakortsins og byrjar á GCP. Muna að ýta á „virkja“.
Við mælum alltaf með að bóka fyrir fram til þess að tryggja að það sé laust. Með Ösp þá er nauðsynlegt að bóka fyrir fram í bókunarvél.
Því miður er ekki hægt að nota gjafakortin upp í aðrar vörur. Þau gilda eingöngu fyrir þá upplifun sem þau voru keypt fyrir.
Verð á aðgangi í Laugarás Lagoon eru breytileg og fara eftir dagsetningu, tíma og framboði hverju sinni. Birki aðgangur er frá 6.900–9.900 kr., Lerki aðgangur frá 9.400–12.400 kr. og Ösp frá 15.900–18.900 kr. Gjafakortin eru seld á föstu verði sem tekur meðaltal af verðbili aðganganna.
Aðstaða og aðgengi
Gestir okkar njóta baðlóns sem er á tveimur hæðum; þar er kaldur pottur, tvö gufuböð, slökunarsvæði, barir í lóninu, kyrrlátur hellir, töfrandi foss og veitingastaðurinn Ylja.
Já, farangursgeymsla er í boði fyrir gesti. Vinsamlega spyrjist fyrir í móttökunni til að fá upplýsingar um geymslumöguleika og kostnað.
Afnot af handklæði er innifalið í Lerki- og Ösp-pökkunum. Fyrir Birki-pakkann er hægt að leigja handklæði fyrir 1.200 kr.
Handklæði eru innifalin í Lerki- og Ösp-pökkunum. Gestir sem velja Birki-pakkann geta leigt handklæði fyrir 1.200 kr. Ef gestir kjósa að koma frekar með sitt eigið handklæði þá er þeim velkomið að gera það.
Já, lónið tekur vel á móti fötluðu fólki. Sérstakur búningsklefi er í boði fyrir gesti, með eða án aðstoðarmanna, og hjólastólalyfta er á staðnum.
Laugarás Lagoon er hannað með aðgengi fyrir hjólastólanotendur í huga. Vinsamlega hafið samband við lónið fyrir fram til að fá nákvæmar upplýsingar um aðgengi og aðstoð.
Já, við tökum á móti hópum sem vilja snæða á veitingastaðnum Ylju. Nánari upplýsingar veitir sales@laugaraslagoon.is.
Gjafakort
Til að bóka með gjafakorti á vefnum er bókað eins og venjulega. Í greiðsluferlinu er númerið á gjafakortinu slegið inn í dálk sem merktur er afsláttarkóði/gjafakort. Númerið er efst í horni gjafakortsins og byrjar á GCP. Muna að ýta á „virkja“.
Við mælum alltaf með að bóka fyrir fram til þess að tryggja að það sé laust. Með Ösp þá er nauðsynlegt að bóka fyrir fram í bókunarvél.
Því miður er ekki hægt að nota gjafakortin upp í aðrar vörur. Þau gilda eingöngu fyrir þá upplifun sem þau voru keypt fyrir.
Verð á aðgangi í Laugarás Lagoon eru breytileg og fara eftir dagsetningu, tíma og framboði hverju sinni. Birki aðgangur er frá 6.900–9.900 kr., Lerki aðgangur frá 9.400–12.400 kr. og Ösp frá 15.900–18.900 kr. Gjafakortin eru seld á föstu verði sem tekur meðaltal af verðbili aðganganna.
Heilsa og öryggi
Barnshafandi konur eru velkomnar í Laugarás Lagoon en séu þær eitthvað óöruggar er mælt með að þær ráðfæri sig við heilbrigðisstarfsfólk áður en komið er í heimsókn.
Allir gestir verða að fara í sturtu án sundfata áður en farið er í lónið samkvæmt íslenskum hreinlætisreglum.
Reykingar og notkun rafretta er hvorki leyft í lóninu né annars staðar á svæðinu. Sérmerkt svæði fyrir reykingar gæti verið í boði fyrir utan aðalbygginguna.
Gestum er ráðlagt að taka með sér sundfatnað. Annar búnaður er útvegaður í samræmi við hvaða aðgangspakki er valinn.
Vatnið í lóninu kemur frá hverasvæðinu í Laugarási og berst til okkar í gegnum Bláskógabyggð. Það er kælt niður með jökulvatni úr Hvítá sem fer í gegnum náttúrulega síun áður en það rennur í lónið. Vatnið er því náttúrulegt og án klórs.
Nei, vatnið í lóninu er án klórs. Það kemur frá náttúrulegum uppsprettum og er blandað með náttúrulega síuðu jökulvatni úr Hvítá.
Já, vatnið í lóninu er náttúrulegt. Heita vatnið kemur frá hverasvæðinu í Laugarási og er kælt með jökulvatni úr Hvítá sem hefur farið í gegnum náttúrulega síun.
Matarupplifun og veitingastaður
Veitingastaðurinn okkar Ylja býður upp á árstíðabundinn matseðil með hráefni úr nærliggjandi sveitum, útgerðarbæjum og gróðurhúsum.
Í eldhúsi Ylju ræður ríkjum hinn víðfrægi kokkur Gísli Matthías Auðunsson, betur þekktur sem Gísli Matt. Áður en Gísli gekk til liðs við Laugarás Lagoon var hann hvað frægastur fyrir veitingastaðinn sinn Slippinn í Vestmannaeyjum sem hann rak frá 2012 til 2025.
Veitingastaðurinn rúmar allt að 80 manns innandyra. Að auki eru borð á útisvæði í boði þegar veður leyfir.
Það eru tveir barir sem hægt er að synda upp að og fá drykki á meðan þú slakar á í vatninu. Það er ekki boðið upp á mat inni á sjálfu lónssvæðinu. Veitingastaðurinn Ylja er við hliðina og tekur á móti gestum fyrir eða eftir upplifunina af baðlóninu.
Lítið „grípa með sér“ svæði er einnig í boði yfir daginn fyrir þá gesti sem ætla sér ekki að borða á veitingastaðnum.
Viðburðir og einkasamkvæmi
Já, einkarýmið milli lónsins og veitingastaðarins hentar vel fyrir kvöldverðarboð, móttökur, fundi og listviðburði. Rýmið er búið Wi-Fi og skjávarpa, sem hentar fullkomlega fyrir bæði glærusýningar og bíó. Endilega hafðu samband við okkur á sales@laugaraslagoon.is fyrir frekari upplýsingar.
Já, í boði er einkasalur milli baðlónsins og veitingastaðarins sem hentar vel fyrir ýmis konar viðburði. Hann rúmar allt að 38 gesti í kvöldverð. Endilega hafðu samband við okkur á sales@laugaraslagoon.is fyrir frekari upplýsingar.
Rýmið er búið Wi-Fi-tengingu og skjávarpa og skreytt með listaverkum eftir Sigmund Freysteinsson.
Árskort
Árskortið gildir í eitt ár frá fyrstu heimsókn og skal virkja innan þriggja mánaða frá kaupdegi.
Nei, engin fyrirframbókun er nauðsynleg og árskortshöfum er tryggður aðgangur.
Já. Handhafi einstaklingskorts má taka með sér allt að tvö börn á aldrinum 5–15 ára í hverri heimsókn og handhafar fjölskyldukorts allt að fjögur börn.