Uppgötvaðu Laugarás Lagoon

Laugarás Lagoon býður upp á einstaka upplifun þar sem saman fara slökun, náttúra og úrvals matur aðeins nokkrum mínútum frá þekktustu náttúruperlum Íslands.

Ólíkt öðrum baðstöðum á Íslandi geta gestir slakað á í baðlóni sem er á tveimur hæðum með flæðandi fossi á milli, ásamt töfrandi hellalaug. Upplifunin sameinar náttúrulegt jarðvarmavatn, svalandi kaldan pott og stórbrotna sánu, allt saman í skógi vaxinni og hrífandi umgjörð við Hvítá.

Laugarás Lagoon í faðmi náttúrunnar við Hvítá

Sýn okkar

Laugarás Lagoon var skapað til að bjóða upp á ferska leið til að njóta baðlóna á Íslandi.

Hér mætast náttúra, hönnun og vellíðan í einni samfelldri upplifun. Kjarninn í okkar stefnu er sjálfbærni; að bera virðingu fyrir náttúrufegurð svæðisins og bjóða gestum upp á einstaka vellíðan í sátt við umhverfið.

Þorpið Laugarás með gróðurhúsum og skóglendi

Um Laugarás

Laugarás er heillandi þorp á Suðurlandi, þekkt fyrir gróskumikinn gróður, jarðhita og blómlegt mannlíf í nærliggjandi sveitum.

Þorpið er aðeins í örfárra mínútna akstursfjarlægð frá þekktustu náttúruperlum Íslands á Gullna hringnum og er í nánu sambýli við náttúruna. Umvafið þéttum skógi og staðsett við bakka Hvítár er baðlónið okkar kjörinn griðastaður fyrir þau sem leita slökunar og endurnýjunar.

Leiðin til okkar

Keflavíkurflugvöllur — Laugarás Lagoon
120 mínútur
Reykjavík — Laugarás Lagoon
80 mínútur
Geysir — Laugarás Lagoon
27 mínútur
Gullfoss — Laugarás Lagoon
39 mínútur
Keflavíkurflugvöllur
Keflavíkurflugvöllur
Reykjavík
Reykjavík
Þingvellir
Þingvellir
Geysir
Geysir
Gullfoss
Gullfoss
Reykholt
Selfoss
Selfoss
Laugarás Lagoon