Skynjaðu Laugarás 17. og 18. október
Í tilefni af eins árs afmæli Laugarás Lagoon bjóðum við 17. og 18. október upp á sérstakar morgunstundir þar sem ylur, ilmur, bragð og kyrrð mætast.
Morguninn hefst á saunagusu með Þóru Hrund frá Munum,
Að gusunni lokinni tekur við gæðastund í lóninu með inniföldum drykk og að lokum brönsplatti á veitingarstaðnum Ylju að hætti Gísla Matt.

Veldu þína upplifun
Við bjóðum upp á þrjár leiðir til að njóta Laugarás Lagoon. Allir pakkar veita aðgang að lóninu og baðaðstöðunni. Birki felur í sér aðgang að lóninu. Lerki bætir við handklæði og einum drykk að eigin vali. Ösp sameinar aðgang að lóninu, handklæði, einn drykk og tveggja rétta máltíð af dagsseðli á veitingastaðnum Ylju.

Ösp

Lerki

Birki
Birkitía – Tíu heimsóknir á betri kjörum
Með Birkitíunni færðu 10 nærandi heimsóknir sem færa þig nær jafnvægi, ró og vellíðan, á allt að 40% lægra verði.

Heita vatnið. Tær náttúra. Ein upplifun.
Við bakka Hvítár í Laugarási bíður Laugarás Lagoon, tveggja hæða baðlón þar sem kyrrð, hlýja og náttúra mynda einstaka upplifun. Hér fær tíminn að hægja á sér og náttúran að njóta sín.


Bragð náttúrunnar
Á veitingastaðnum Ylju skapar Gísli Matthías Auðunsson ásamt sínu teymi matseðil sem byggir á fersku, staðbundnu hráefni frá bændum, gróðurhúsum og framleiðendum á Suðurlandi. Hér mætast íslenskar matarhefðir og nútímalegar matreiðsluaðferðir í eftirminnilegri matarupplifun.
Gestir geta bókað borð á Ylju eða valið Ösp, upplifunarpakka sem inniheldur aðgang að Laugarás Lagoon og tveggja rétta máltíð af dagsseðli.

Láttu náttúruna umvefja þig
Rjóður er húðvörulína Laugarás Lagoon og sækir innblástur í lítinn skógarreit við lónið. Ilmir af birki, lerki og öðrum íslenskum jurtum endurspegla náttúruna í kringum Laugarás og gera daglega húðumhirðu að hluta af heildarupplifuninni. Vörurnar eru til staðar í búningsklefum og sturtum og fást einnig til kaups í móttökunni.

Fylgstu með
Skráðu þig á póstlistann okkar. Fylgstu með nýjustu fréttum, viðburðum og sértilboðum frá Laugarás Lagoon.
Ég er að skrá mig sem


